Framkvæmdasvæði
verkefnisins
Vindorkugarðurinn Hnotasteinn er staðsettur á Hólaheiði í Núpasveit sunnan við Norðausturveg. Framkvæmdarsvæðið er 3.330 ha að stærð og er á landi Presthóla, Katastaða og Efri-Hóla. Heildar landnotkun af svæðinu sem vindorkugarðurinn er á er undir 1% af heildar stærð svæðisins.
Vindorkugarðurinn samanstendur af 30 vindmyllum og er áætlaður 216 MW. Við hönnun vindorkugarðsins var leitast við að nýta núverandi vegi innan svæðisins til að lágmarka fótspor verkefnisins. Vindmyllum var stillt upp með tilliti til iðutapa, ásýndar til byggðar og áhrifa á fugla ásamt fjölda annarra þátta.
Við val á staðsetningu svæðisins var horft til vindafars, aðgengi, tengingu við flutningskerfi raforku, uppskipun og allra möguleika til að halda neikvæðum umhverfisáhrifum í lágmarki.
Smelltu á myndina til þess að stækka hana



