Flutningar vindmylla að Hnotasteini
Flutningarnir eru með þeim umfangsmestu sem þekkst hafa hér landi. Ítarlegt skipulag og náið samráð við alla hagaðila er forsenda þeirra. Stuðst verður við umferðarstjórnunaráætlun sem unnin verður í samstarfi við Vegagerðina, og kröfum stofnunarinnar um lagfæringar á vegum að flutningum loknum verður fylgt í einu og öllu. Áætlað er að flutningarnir standi yfir frá vori og fram á haust meðan vegir eru greiðfærir. Þeir munu fara fram með hléum og gert ráð fyrir að þeir standi yfir í kringum 2 daga í senn eftir hverja uppskipun. Til að minnka rask af völdum flutningana er fyrirhugað að flytja vindmyllurnar í lestum að kvöldi og nóttu til.
Uppskipun á Raufarhöfn er talin henta best þar sem fjarlægðin frá höfninni að framkvæmdarsvæðinu er tiltölulega stutt, eða um 32 km. Bratti leiðarinnar er hóflegur alla leið að framkvæmdarsvæðinu, fáar beygjur og vegamót á leiðinni og einungis ein lítil brú. Gera má því ráð fyrir að hver ferð frá Raufarhafnarhöfn að framkvæmdarsvæðinu taki um 1-2 klukkustundir.

Raufarhafnarhöfn
Flutningsleiðina má sjá á kortinu hér að neðan, en áætluð leið frá Raufarhöfn er lituð í dekkri appelsínugulum lit. Leiðirnar í daufari lit eru aðrir kostir sem skoðaðir voru, en eru erfiðari yfirferðar sökum vegalengdar, ástands vega og fjölda eða ástands brúa.



