top of page

Hnotasteinn

Pictogram - Renewable energy

Um 216 MW af uppsettu afli

Allt að 30 vindmyllur

Hnotasteinn er vindorkuverkefni staðsett á Hólaheiði í Núpasveit. Verkefnið dregur heiti sitt af stórum steini á svæðinu. Virkjunin mun auka framboð af raforku í nærsamfélaginu sem mun stuðla að lægra orkuverði og bættri samkeppnisstöðu atvinnulífsins. Það ýtir undir fjáfestingu, aukna framleiðslu og fleiri atvinnutækifæri. Vindorkugarður að Hnotasteini er einnig mikilvæg forsenda nýrrar tengingar Landsnets í landshlutanum. Styrking flutningskerfisins stórbætir aðgengi að raforku og eykur afhendingaröryggi.

Hnotasteinn á Hólaheiði

Helstu samfélagslegu áhrif verkefnisins eru eftirfarandi:

FRAMKVÆMDATÍMI

Jákvæð áhrif vegna nýrra starfa og skatttekna

Screenshot 2026-04-21 154812.png

Gera má ráð fyrir jákvæðum áhrifum vegna óbeinna starfa sem skapast á svæðinu og margfeldisáhrifa aukinna umsvifa vegna verkefnisins.

REKSTRARTÍMI

Áhrif í formi aukinna umsvifa, fasteignagjalda, starfa og aukins framboðs raforku

Screenshot 2026-04-21 154954.png

Áætla má að aukið aðgengi að raforku hafi jákvæð áhrif á launaþróun á áhrifasvæðinu líkt og rannsóknir á Íslandi hafa bent til.

 

Aukið aðgengi að raforku getur stutt við atvinnuuppbyggingu á svæðinu til lengri tíma og stuðlað að aukinni eftirspurn vinnuafls og haft jákvæð áhrif á launaþróun.

 

​Ítarlegri upplýsingar um hagræn og samfélagsleg áhrif verkefnisins er að finna í skýrslu neðar á þessari síðu.

Hér fyrir neðan er skýrsla um mat á hagrænum og samfélagslegum áhrifum af fyrirhuguðum vindorkugarði að Hnotasteini á Hólaheiði í Núpasveit á nærliggjandi byggðir og sveitarfélög. Farið er yfir áhrif á íbúaþróun, laun og vinnumarkað, tekjur sveitarfélaga, þjónustu og innviði, bæði á framkvæmda- og rekstrartíma. 

Háblær with horses grazing

Reynslunni ríkari

Háblær í Þykkvabæ

Háblær er endurreist virkjun sem samanstendur af tveimur 900 kW Enercon E44 vindmyllum. Háblær ehf. er í eigu Qair og Arion Banka, en það var stofnað til þess að reisa tvær nýjar vindmyllur í stað þeirra eldri sem fyrir voru. Vindmyllurnar eru smærri og aflmeiri en þær gömlu sökum mikilla tækniframfara. Bæjarbúar hafa nefnt vindmyllurnar Blíðu og Blæ.

Wind turbine diagram

Niðurrif og endurvinnsla

gömlu vindmyllanna

Þegar ákveðið var að rífa niður eldri vindmyllurnar í Þykkvabæ var gerður samningur við endurvinnslufyrirtækin Hringrás Endurvinnsla, Stena Recycling, og Neowa um að taka niður vindmyllurnar, fjarlægja og endurvinna.

Vindmyllurnar voru bútaðar í smærri flutningshæfar einingar sem voru að mestu fluttar á brott með gámum. Málmarnir úr vindmyllunum voru seldir. Miðað við verð á endurnýjanlegum málmum hverju sinni getur salan borgað fyrir niðurrif vindmylla. Vindmylluspaðarnir voru flokkaðir sér, enda gerðir úr trefjaplasti. Hringrás sá um undirbúning spaðanna fyrir afhendingu til Stena. Spaðarnir voru fluttir frá Íslandi til Danmerkur til frekari undirbúnings og þaðan til Þýskalands í hendur Neowa.

image.png

Niðurrif vindmyllu í Þykkvabæ árið 2022.

Neowa sá um að tæta og endurvinna spaðana endanlega í sérhannaðari endurvinnslustöð í Bremen. Trefjaplastið í spöðunum var breytt í einsleita vöru (e. medium-calorific substitute) sem kemur í stað hráefna í sementsframleiðslu. Engar leifar myndast í ferlinu og er því 100% endurvinnslulausn.

Ef farið er fram á að fjarlægja undirstöður, vinnupalla og vegi þá er aukakostnaður við þá vinnu og hún gerð eftir að vindmyllurnar sjálfar hafa verið fjarlægðar. Ekki varið farið fram á það í tilfelli Háblæs þar sem að áætlunin var að endurreisa tvær nýjar vindmyllur á sama reit og þær gömlu með bættum undirstöðum.

Hátíðarlýsing í Þykkvabæ

Á fundi með íbúum Þykkvabæjar þann 4. júní 2025 vorum við beðin af íbúum að lýsa upp Blíðu og Blæ yfir næstu bæjarhátíð. Við bárum þessa hugmynd undir erlenda sérfræðinga og töldu þeir þetta vera í fyrsta skipti sem slík beiðni er lögð á borð orkufyrirtækis á heimsvísu.

Þann 14. ágúst 2025 var haldin kartöfluhátíð í Þykkvabæ þar sem boðið var uppá ýmiss konar skemmtun ásamt dýrindis kartöflusúpu sem Kvenfélagið Sigurvon átti heiðurinn af. Rauður var litaþema hátíðarinnar, tilefnið var nýtt og fengum við sérfræðingana hjá Luxor og SS-Raf til að aðstoða okkur við herlegheitin. Við erum virkilega stolt af niðurstöðunni og þeim viðtökum sem við fengum og hæstánægð með félagsskapinn.

Háblær color-lit turbine 1
Háblær color-lit turbine 2
Háblær color-lit turbine 3
Háblær color-lit turbine 4
Qair logo white 2

© 2026 Qair Ísland

  • Facebook
  • LinkedIn
bottom of page